Jæja er ekki löngu kominn
tími til að blogga?
Um síðustu helgi skellti ég mér á Selfoss og kom þangað á
Fimmtudaginn... ég fór eginlega strax út og hitti hana Eyrúnu mína
og við löbbuðum á móti Eydísi... Eftir slatta af knús og ég saknaði
þín röltum við stelpurnar niður í Kalla úr og létum hann skjóta
nokkrum stykkjum eyrnalokkum í eyrun á okkur

Síðan var farið á
KFC til að halda upp á að ég gat það loksins og fórum síðan út í
Horn að hitta hann Skúla Pronto...
Hmmm... Föstudagur (þetta verður ekki langt og merkilegt blogg hjá
mér... ég er soldið að flíta mér SORRY!) Jæja... Skúli og Eyrún
komu til mín og við skemmtum okkur við að bíða eftir henni Eydísi
sem var að vinna (til tilbreytingar) og þegar hún var mætt á svæðið
fórum við að hitta BimOo og Þóa...

Síðan kom það merkilega....
Það var skellt sér á GEÐVEIKA sign tónleika í Tryggvaskála




SHIMMY!! og pronto! og Hrannar og Eyrún og BimOo (oooog píanó)
fremmst að fíla sig eiginlega alltof mikið í tætlur!!

Hójá!! bara gaman!! síðan fórum við Eydís heim til mín og rotuðumst
þar...
Daginn eftir.. semsagt á Laugardeginum skelltum við okkur síðan á
Pizza (semsagt ég, Eydís, Skúli, BimOo og Gatis af einhverjum
ástæðum) síðan var haldið heim til Skúla þar sem hann hélt magnaða
sign trommu tónleika fyrir liðið...

Skúli þú ert snillingur
og ekkert annað!! og svo sýndi Ingó líka trommuhæfileika sína ekki
má gleyma því

Um Kvöldið vorum við (pronto! og Gísli) síðan
plötuð til að fara heim til Hildar þar sem við hittum fyrir eikkað
fleirra fólk og fórum á trampólín... Hér er smá ráð samt... ALDREI
fara með Skúla á trampólín!! þessi krakki er ekkert nema
ofvirkur!!!


Enda endaði hann einn á trampólíninu ásamt Eydísi
sem mér þykir rosalega hugrökk!!

Síðan þegar allir þreyttust
á því var haldið heim til Erlu (pronto! og Arnar í þetta skyptið)
þar sem Skúli svalaði sjálfpíningar hvöt sinni og fékk misheppnað
gat í tunguna og tvö mjög vel heppnuð Pronto göt í Eyrað
Á sunnudeginum horfðum við Skúli og Eydís á The Wall heima hjá
Eydísi í kveðju skyni og svo var mér skutlað í bæinn þar sem ég
beið þangað til ég var sótt og farið með mig aftur á Gúrkubýlið
Síðan daginn eftir ( minnir mig ) skelltum við Andri og Hjalti
okkur á poseidon (geðveik mynd) og rúntuðum um bæinn með fullan bíl
af dekkjum og Baywatch lagið í botni
svo gerðist voð lítið annað í vikunni held ég
á Föstudaginn síðasta skelltum við Andri okkur á Bifröst til að
hitta Ragnar vin hanns og við fórum í pottinn og horfðum á
endalausar myndir og sona gaman... og keyptum okkur ís

og þá
uppgvötvaði Andri þá nýju hæfileika að borða ís með eingum höndum

þegar við komum heim var bolurinn hanns allur út í ís

já og við semsagt gistum heima hjá Ragga og komum heim í gær og
fengum pizzu

og það eina sem ég er búin að gera í dag er að vinna og núna ætla
ég að hætta þessu rugli og fara í sturtu!!!
Rakel
